
Tilvitnanir og spakmæli
"Menn hafa breytt málsháttum, en aldrei gert þá ósanna."
Geliska
"Hvarvetna sakast menn við náttúruna og örlögin, en örlög þeirra eru þó sjaldnast annað en endurómur af eigin skapferli og ástríðum, brestum og löstum."
Demókrítos
"Fróðlegt væri að vita hvað gerast myndi í samfélagi þar sem engar reglur væru til að brjóta. Vafalaust mundu allir drepast úr leiðindum."
Susan Howatch
"Ef þú getur ekki sofið, farðu þá á fætur og gerðu eitthvað í stað þess að liggja og hafa áhyggjur. Það eru áhyggjurnar sem hafa áhrif, en ekki skortur á svefni."
Dale Carnegie
"Engar teprur eru meiri en þær sem eiga eitthvert lítið leyndarmál að fela."
George Sand
"Það er mikla ánægju að finna í gagnlausri vitneskju."
Bertrand Russell
"Mundu að þú ert aðeins leikari í sjónleik þar sem leikstjórinn ræður."
Epiktet
Til að fletta upp fleiri tilvitnunum (á ensku).
Quotations Page Search